Casumina BS885 vörubíladekk
Bluestone

Casumina BS885

11R22.5 · 295/75R22.5
Burður · svæðisakstur og blandað undirlag

Stálbelt TBR-dekk flutt inn beint frá verksmiðju. Fast verð í forsölu.

Skrá forpöntun

BS885 er með 23–24 mm mynsturdýpt, þá mestu í öllu 22,5 tommu úrvalinu. Gerðin er byggð fyrir bíla sem keyra bundið slitlag út úr bænum og malarveg síðasta spölinn — dæmigert mynstur fyrir verktakaflutninga, hey- og fóðurflutninga og dreifingu út á land. Dýpra mynstur þýðir lengri líftíma á grófu undirlagi, en líka meiri hitamyndun á löngum hraðakstri, svo hún á síður við hreina langkeyrslu. Rifjamynstrið heldur samt stefnufestu sem er nær Greenstone en hefðbundnu drifmynstri.

Tæknilýsing

StærðPRBurðarstuðullHraðatáknÞvermálBurðarþolÞrýstingurMynsturdýpt
11R22.518152/148M1065 mm3550/3150 kg850 kPa23 mm
11R22.516146/143L1066 mm3000/2725 kg830 kPa23 mm
295/75R22.516146/143L1028 mm2800/2575 kg760 kPa24 mm

Hentar fyrir

  • Verktakaflutningar og blandað undirlag
  • Bílar sem fara reglulega af bundnu slitlagi
  • Burðarás þar sem grjót og skurðir eru vandamál
  • Mesta mynsturdýpt í 22,5″ úrvalinu

Skráðu forpöntun á BS885

Fast verð og tryggð stærð fyrir þá sem skrá sig áður en fyrsti gámurinn lokast. Þú borgar ekkert fyrr en pöntunin er staðfest.

Skrá forpöntun