Stýri og burður · þjóðvegur
Rifjamynstur með þremur jöfnum rifjum eftir miðjum slitfleti. Kjarnastærðirnar fyrir íslenska flutningabíla eru hér — bæði 315/80R22.5 og 295/80R22.5.
Nánar um GS621 →
Burður · þjóðvegur og borgarakstur
Sama grunnmynstur en með 18–19 mm slitfleti í stað 16. Dýpra gúmmí þýðir fleiri kílómetra á skrokk og betri forsendur fyrir sólningu.
Nánar um GS851 →
Stýri · þjóðvegur og hópferðabílar
Grunnmynstrið í línunni og það sem flestir rútu- og flutningabílar keyra á. Fæst bæði slöngulaust og með slöngu.
Nánar um GS611 →
Burður · svæðisakstur og blandað undirlag
23–24 mm slitflötur, sá dýpsti í 22,5" úrvalinu. Byggt fyrir bíla sem keyra bæði bundið slitlag og malarvegi sama daginn.
Nánar um BS885 →
Tengivagn · svæðisakstur og malarvegir
Eina 385/65R22.5 stærðin í úrvalinu — dæmigert tengivagnadekk. Grófir, hliðraðir kubbar og styrktar axlir sem verjast skurði í beygjum.
Nánar um BS662 →
Drif · svæðisakstur og verktakastarfsemi
Hliðrað kubbamynstur með sérblandaðri gúmmíblöndu sem ver gegn skurði. Ætlað bílum sem eru jafnmikið á athafnasvæðum og úti á vegi.
Nánar um BS881 →
Drif · svæðisakstur og malarvegir
Nýjasta mynstrið í Bluestone-línunni og það burðarmesta. 22 PR útgáfan tekur 4.250 kg á einföldu dekki.
Nánar um BS888 →
Malarnám, athafnasvæði, lágur hraði
Stórir kubbar og breiðar, gisnar rásir. 24 mm slitflötur og sérstök gúmmíblanda gegn skurði — byggt fyrir grjót og lágan hraða.
Nánar um RS694 →
Malarnám og athafnasvæði
Nýjasta Redstone-mynstrið. Sama hugmynd og RS694 en með þéttari kubbaskipan og 23 mm slitfleti.
Nánar um RS697 →
Náma · yfirhleðsla og mjög lágur hraði
Alveg ný lína fyrir malarbíla í námuvinnslu. Breiður slitflötur dreifir álaginu jafnar og upphækkaðar rifjur milli axlarkubba auka stífni gegn skurði.
Nánar um SS679 →
22,5" er staðalstærð á íslenskum vöru- og hópferðabílum; stærðir merktar R20 og R24 eiga fyrst og fremst við eldri bíla og tæki á athafnasvæðum. Vantar þig stærð sem er ekki á listanum má hafa samband, en afgreiðslutími er þá lengri.